Gilofa stuðningssokkarnir
Gilofa er vönduð vörulína af stuðningssokkum og -sokkabuxum. Vörurnar eru hannaðar með þægindi í fyrirrúmi og reynast vel fyrir fólk með hvers kyns fótaóeirð, bjúg, Hallux valgus, og önnur fótavandamál sem fólk getur þurft að kljást við þ.m.t. sérhæfðir sokkar fyrir sykursjúka.
Á Íslandi er Gilofa 2000 án efa vinsælust af Gilofa vörunum og þá helst bómullar og Aloe Vera útgáfurnar af þeim sokkum.
Til að draga úr sérstökum fótavandamálum er mikilvægt að vera í réttri gerð af sokkum. Stuðningssokkar veita fótum aðhald án þess að þrengja óþægilega að. Gilofa sokkarnir eru hannaðir til að auka blóðflæði sem jafnframt eykur næringu til vöðvanna og minnkar þannig bjúgmyndun svo um munar. Stuðningssokkar henta mjög vel þeim sem standa eða sitja lengi og eru tilvaldir fyrir flugfarþega, sem veldur því að stuðningssokkar eru oft kallaðir flugsokkar.
Valía ehf. er umboðsaðili Gilofa á Íslandi. Gilofa vörurnar fást í öllum helstu apótekum landsins.












