Við höfum sérhæft starfsfólk

Heildverslunin Valía

Við sérhæfum okkur í innflutningi og sölu á heilsutengdum vörum, fatnaði, stuðningsvörum, stuðningssokkum og búnaði fyrir heilbrigðisstéttir

Heildverslunin Valía ehf. var stofnuð árið 1989 með það að markmiði að sérhæfa sig í innflutningi og sölu á heilsutengdum vörum eins og fatnaði, stuðningsvörum, stuðningssokkum og búnaði fyrir heilbrigðisstéttir.

Valía efh. er umboðsaðili fyrir Hellmuth-Ruck, OFA-Bamberg, Bellinda, Zimmerli og fleiri aðila en þessi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera fremst á sínu sviði í framleiðslu á vörum fyrir fótaaðgerðafræðinga, snyrtistofur, nuddstofur, sjúkraþjálfa o.fl.

Heildverslunin Valía ehf. hefur á að skipa starfsfólki með áratuga reynslu í starfi sem leggur metnað sinn í að bjóða það besta sem völ er á hverju sinni á hagkvæmu verði.

Valía ehf. stuðlar þannig að betri líðan fólks með gæðavörum.

Leitaðu endilega til okkar ef þú þarft aðstoð við að bæta vellíðan þinna skjólstæðinga.